ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Mér finnst pistill Haraldar benda til þess sem við höfum haldið fram áður, eins og ég sagði áðan, að þjóðinni er ekki sama. Hún fylgist með þessu máli og þeim upplýsingum sem fram koma og lætur sig málið varða enda um framtíðarhagsmuni hennar að ræða.
Þingmaðurinn hefur skoðun á því að fyrirvararnir sem Haraldur orðar svo dæmalaust kurteislega séu sveipaðir dulúð. Það hefur komið fram í ræðum hér að við höfum, einkanlega hv. þm. Karl Gauti Hjaltason, gert leit að þessum meintu fyrirvörum, hvar þá væri að finna, hvernig þeir væru settir fram o.s.frv. Í fyrsta lagi hefur leitin enn ekki borið árangur en í öðru lagi hefur það komið fram, t.d. af hálfu málsmetandi lögmanna, að fyrirvarar sem settir eru við þetta mál af hálfu ríkisstjórnarinnar séu ekki túkalls virði. Leidd hafa verið að því rök, m.a. í ræðum í þessari umræðu, að ef sverfa myndi til stáls í þessu máli, ef t.d. yrði höfðað mál á hendur íslenskum stjórnvöldum vegna innleiðingar orkupakkans, eru hinir svokölluðu fyrirvarar sem settir hafa verið hjóm eitt. Þeir standast ekki nokkra einustu skoðun. Þeim yrði hent út úr dómsal óðar og málflutningur hæfist.
Ég ítreka að Haraldur Ólafsson fer dável yfir það og kurteislega að segja að þeir séu sveipaðir dulúð, það er eiginlega það minnsta sem menn geta sagt (Forseti hringir.) um þetta mál.