149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[14:12]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir svörin. Fyrirvararnir eru eins og segir í umræddri grein sveipaðir dulúð. Nú hefur sá sem hér stendur ætíð litið þannig á að allir fyrirvarar sem gerðir eru í viðskiptum eða samningum, þar sem tveir aðilar eiga yfirleitt aðild að máli, kannski fleiri, þurfi að vera undirskrifaðir af báðum aðilum þannig að þeir haldi vatni. Er það ekki líka stór partur í þessu máli að þeir fyrirvarar sem við erum að tala um eru eingöngu gerðir til heimabrúks, eins og oft hefur komið fram, en ekki stimplaðir í sameiginlegu EES-nefndinni?

Er það ekki það sem við sem viljum bíða með afgreiðslu þessa pakka erum að kalla eftir að verði gert og kemur m.a. fram í greininni? Telur þingmaðurinn það ekki vera frumskilyrði? Best er náttúrlega að geta gert samning fyrirvaralausan, að samningurinn sé það góður, sé það vatnsheldur, að hann geti haldið án þess að fyrirvarar séu gerðir, án þess að kalfagta þurfi í einhverjar sprungur.