ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Allnokkrir lögspekingar hafa hvatt stjórnvöld til þess að hafna þriðja orkupakkanum og senda hann í sáttameðferð til sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem gerðir yrðu lögformlegir fyrirvarar sem ESB stæði að og myndu þess vegna halda. Það vill svo illa til að ég fann ekki í fórum mínum greinargerð frá Eyjólfi Ármannssyni lögmanni sem á að vera í róti á borðinu mínu. Hann kemur ágætlega inn á þetta í umsögn sem hann sendi utanríkismálanefnd en ekkert var gert með. Ég átti orðastað við hæstv. utanríkisráðherra um þessa umsögn sem utanríkisráðherra virtist ekki kannast við en talaði niður. Hann sagði sem svo: Við reiðum okkur á bestu sérfræðinga. Með því fannst mér hann vera að gera lítið úr þessum ágæta manni, Eyjólfi Ármannssyni, sem hefur að mínu mati sett fram einna bestu greinargerðina sem ég hef enn séð um þetta mál. Niðurstaða hans er algjörlega afdráttarlaus, þ.e. að senda beri málið aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar á grundvelli 102. gr. EES-samningsins til að þar náist sameiginleg niðurstaða eftir sáttameðferð.
Hv. þingmaður orðaði það svo vel þegar hann talaði um að báðir aðilar málsins yrðu að vera sammála og hefðu báðir komið að lausn málsins. Eins og þetta er núna setjum við einhliða fyrirvara. Við höfum gert slíkt áður og runnið á rassinn með það, m.a. í svokölluðu kjötmáli sem verður væntanlega á dagskrá þingsins á næstunni og verða örugglega langar umræður um það. (Forseti hringir.) Það er þetta sem átt er við þegar sagt er að þeir fyrirvarar sem gerðir hafa verið haldi ekki vatni.