ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir. Það er nefnilega svo að þetta mun auðvitað hafa einhverjar afleiðingar og það hlýtur að vera skylda okkar að upplýsa um framhaldið þannig að fólk viti nokkurn veginn að hverju það gengur. Ég veit að hv. þingmaður er áhugamaður um fjölmiðla og hvernig þeir taka og halda á málum til upplýsinga. Þá er spurning hvort ekki geti falist í því ákveðið ákall frá okkur hér að virkja fjölmiðla til að eiga, hvað á maður að segja, þessa upplýstu umræðu og gefa þessu það vægi sem er nauðsynlegt, af því að þetta er gríðarstórt mál. Það er held ég öllum ljóst að orkuverð mun hækka hér og fleiri hlutir spila þar inn í.
Þá er spurning mín til hv. þingmanns hvort hann sé búinn að gera sér einhverja mynd af því hvernig væri hreinlega best að standa að kynningu á orkupakka þrjú. Svo í framhaldinu hvort ekki sé þá eðlilegt að standa undir vandaðri kynningu á orkupakka fjögur. Ég vil segja þetta með öllum fyrirvörum, því að minn einlægi vilji er sá að við frestum málinu til haustsins og það ætti þá að gefa ríkisstjórninni rými til að standa í þetta sinn vel að málum og upplýsa þjóðina um hvað sé í gangi.