ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir ræðu hennar og vil um leið þakka henni fyrir að vekja athygli á þessari skarplegu grein hins þjóðkunna og góðkunna veðurfræðings, Haraldar Ólafssonar, sem hann ritaði á vefrit sem kallað er Kjarninn. Athugasemdir hans eru hinar merkustu og gagnlegustu og þess vegna er gott að hv. þingmaður skyldi vekja athygli á þessu, því að eins og við vitum eru margir að horfa.
Hann ritar greinina undir fyrirsögninni: Hvers vegna á að fresta orkupakkamálinu?
Hann segir, með leyfi forseta:
„Skynsamlegast er að hætta við málið en að öðrum kosti að fresta því til hausts.“
Svo segir hann sömuleiðis, með leyfi forseta:
„Samþykkt orkulagabálksins í norska Stórþinginu verður tekin fyrir 23. september nk. Verði sú samþykkt dæmd ólögmæt bendir allt til að málið gufi upp, Ísland og Noregur verði utan raforkubandalags Evrópu, öllum að meinalausu og mörgum til góðs. Gott ráð er því að bíða úrskurðarins í Noregi.“
Ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður gæti tekið undir þetta en ég vil bera það undir hana. Sömuleiðis vil ég eins og hún þakka öllum þeim sem hafa sent okkur kveðjur og hvatningu og uppörvun og í einni slíkri sem mér barst í morgun var sagt: Það ber auðvitað að fresta þessu máli þar til eftir kosningar. Enda, leyfi ég mér að bæta við, hefur enginn stjórnmálaflokkur aflað sér umboðs kjósenda til að beita sér fyrir þessu máli.