ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Til að byrja á einhverju ætla ég að reyna að koma að lokasvari til hv. þingmanns. Þegar við höldum því fram að mögulega séum við að framselja ríkisvald þá hrista þingmenn hér í salnum hausinn og neita því. En fræðimennirnir Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst hafa haldið þessu fram og þetta er enn þá í mínum huga mjög gild ályktun, ég vil segja það þannig, vegna þess að ég hef enn ekki fengið svör við því: Af hverju er inni á samráðsgátt stjórnvalda frumvarp hæstv. ráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, um auðlindir. Það varðar stjórnarskrána og allt það. Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að það er fram komið. Ég er eiginlega nokkuð viss um að þetta hangir allt saman.
Hv. þingmaður ræddi um að við þyrftum að fresta málinu. Ég held að fólk sé komið almennt á þá skoðun. Það er svo sem ekki nóg að fresta málinu vegna þess að fara þarf fram samtal, eins og það kallast nú til dags, um hverjir eru kostir og gallar og hvernig við náum niðurstöðu, hvernig við verjum hreinlega stöðu landsins með tilliti til orkumála.
Það er alveg rétt að ég tók ekki eftir því að nokkur stjórnmálaflokkur hefði þetta mál á sinni dagskrá. Þó virðist þetta alltaf hafa legið í pípunum, alla vega voru margir aðrir flokkar en við í Miðflokknum meðvitaðir um á hvaða vegferð t.d. núverandi stjórnarflokkar voru. Kannski ætti einmitt að fresta málinu hreinlega fram yfir næstu kosningar, hvenær sem þær verða.