ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Hv. þm. Sigurður Páll Jónsson kom inn á ágætishugsun. Kynningin þarf að vera vönduð og má gjarnan að mínu viti vera þannig að það þurfa ekki allir endilega að vera sammála heldur að vega og meta ýmis sjónarmið sem kunna að koma upp. Síðan getur fólk dregið sína ályktun af því hvernig best er að haga málum.
Ég veit ekki hvort þjóðaratkvæðagreiðsla gagnist í þessu tilliti. Þá munu einhverjir segja að spurningar verði of leiðandi þannig að það þarf að vanda mjög til verka fari maður þá leið. Það eitt er víst að við höfum reynt okkar besta hér undanfarna daga til að varpa frekara ljósi á orkupakka þrjú og í framhaldinu þar sem við höfum farið á dýptina höfum við snert á því sem kemur á eftir, þ.e. orkupakka fjögur.
Ég er persónulega komin á þann stað að ég myndi gjarnan viljað kynna mér betur orkupakka fjögur vegna þess að ég sé fyrir mér að það fari eins um hann eins og orkupakka þrjú, að það eigi bara að keyra hann í gegn eins og sagt er. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að hagsmunir allra þeirra ríkja sem koma að EES-samstarfinu hljóta að liggja jafnt til grundvallar. Það á að ganga þannig frá því að það sé gert strax í upphafi en ekki ætla að reyna að laga hlutina eftir á. Við sjáum að það er að gerast í Noregi og það er ekki góð leið.