ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir andsvarið. Það sem ég tel vera kjarna þessa máls sem hún víkur að hér er að við eigum á hættu, sé ekki rétt staðið að málum, að efnt verði til dómsmála gagnvart okkur. Það er annars vegar um að ræða samningsbrotamál, hins vegar skaðabótamál. Þessir möguleikar eru reifaðir í áliti Friðriks Árna Friðrikssonar Hirsts og Stefáns Más Stefánssonar. Við höfum fengið fréttir um ráðagerðir breskra fjárfesta sem virðast vera búnir að vinna verulega undirbúningsvinnu, það er upplýst að þetta mál hefur verið í undirbúningi undanfarin ár og það hefur komið fram í fjölmiðlum að íslenskir ráðgjafar eru að störfum í þágu þessa félags og sömuleiðis að fjármögnun er langt á veg komin ef ekki beinlínis tryggð. Ég skal ekki leggja dóm á það hvort er.
Í ljósi þessa stöndum við frammi fyrir þeirri spurningu sem er að finna í þeirri neðanmálsgrein sem ég vitnaði til í andsvari við hv. þm. Þorstein Víglundsson rétt áðan. Þó að ég myndi ekki blaðsíðutalið þá man ég númerið á henni, nr. 62. Þar vekja þeir máls á því að fyrirtæki sem hefði leitað eftir heimild til tengingar og fengið synjun hjá Orkustofnun gæti farið í slíkt skaðabótamál. Þeir lýsa því glögglega að þeir telji kannski að líkurnar séu ekki okkar megin í slíku máli.