149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:07]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hygg að þetta sé nokkuð rétt hjá hv. þingmanni. Ef maður talar fyrst um Sjálfstæðisflokkinn hef ég trú á því að það að taka þetta mál af dagskrá til að gaumgæfa það betur væri öllu betri afmælisgjöf til flokksmanna á 90 ára afmælinu en orkupakki þrjú. Ég held að það sé frekar slakur afmælispakki. Hér í denn man ég eftir því þegar maður var lítill og átti afmæli þá var maður ekki hrifinn af mjúkum pökkum. En ég hef grun um að almennir Sjálfstæðismenn séu ekki hrifnir af þessari afmælisgjöf.

Hvað Vinstri græn varðar geri ég mér ekki alveg grein fyrir því. Þau virðast vera orðnir markaðsmenn hinir mestu. En líkt og hv. þingmaður sagði um Framsóknarflokkinn, sem nú er bæði með belti og axlabönd, í smekkbuxum og með álímdan hártopp og á nýjum skóm, (Forseti hringir.) þá held ég að sá dularbúningur dugi ekki heldur til að flokksmenn þess flokks taki gleði sína út af þessu máli.