149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:32]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Nú skal það viðurkennt að sá sem hér stendur hefur ekki orðið fyrir áreiti frá Norðmönnum, enda skilur hann norsku ekki mjög vel. Ég kannast ekki við það. En ég kannast hins vegar við og það hoppar upp í hugann mynd af íslenska utanríkisráðherranum ásamt kollega sínum við heyrúllur norður í landi. Ég er ekki frá því að þau kollegarnir hafi hist við heyrúllur norður í landi til að ræða þetta mál. Ég held að þau hafi ekki endilega verið að ræða heysölu bænda til Noregs, án þess að ég viti það, ég hef ekki trú á því. Ég held að sá viðskiptasamningur hafi verið kominn á áður en þau hittust þarna við heyrúlluna.

Ég held að það sé greinilegt að íslensk og norsk stjórnvöld hafa átt í einhverjum samtölum út af þessu máli, og þá væntanlega rætt um stöðu þess á báðum vígstöðvum, þ.e. í Noregi og á Íslandi. Ég segi enn að ég er svolítið tregur að skilja hvers vegna við eigum að klára þetta mál nú í flýti, svo illa búið sem það er, áður en norski stjórnlagadómstóllinn kveður upp úr um hvort málið, eins og það er reifað í Noregi, stenst norska stjórnarskrá. Hver fræðimaðurinn á fætur öðrum hér á Íslandi hefur einmitt varað við því, og það er ekki bara einn, ekki tveir, að málið eins og það er búið hér á Íslandi a.m.k. reyni á þanþol stjórnarskrár Íslands til hins ýtrasta, ef ekki hreinlega fari í blóra við íslensku stjórnarskrána. Það er kannski eitt í viðbót við það sem maður skilur ekki (Forseti hringir.) hvers vegna liggur svo á að þrýsta þessu máli í gegn í óþökk meiri hluta þjóðarinnar.