149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:04]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Fjarri mér er nú að snúa baki við forseta með ljúfu geði, en auðvitað hugsum við um þá sem heima sitja.

Það var mjög athyglisverð ræða sem hv. þingmaður flutti. Í augum, held ég, alheimsins er Ísland staður þar sem hreinleiki ræður ríkjum, hreinleiki náttúrunnar, hreinleiki orkugjafa, hreinleiki sjávar í kringum landið, bergvatnsáa. Það er mjög alvarlegt að mínu mati ef þetta álit umheimsins á Íslandi kemur til með að breytast vegna þess að við höfum ánetjast kerfi sem hefur í för með sér að orka sú sem við notum og „presenterum“, afsakið, forseti, lítur út fyrir að vera ekki hrein eða af hreinum uppruna. Maður hafði áhyggjur af því á sínum tíma þegar þetta kerfi komst á og ég hygg að því sé farið eins og öðrum kerfum sem hanga á þessum tilskipunum að ekki er um það að ræða að losna frá þessu.

Þess vegna verð ég að spyrja hv. þingmann sem greinilega hefur sett sig mjög vel inn í þetta mál: Eigum við eitthvert svar til að lágmarka þann álitshnekki sem ég álít að fylgi (Forseti hringir.) því ef við erum með orkureikninga þar sem 37% upprunans eru talin kjarnorka, sem er náttúrlega víðáttufjarri raunveruleikanum?