149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:06]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir ábendinguna og mun hér eftir snúa mér minna að honum sjálfum. Ég þakka einnig hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir spurninguna. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að eftir því sem viðskipti með raforkuábyrgðir aukast lendum við í nokkurs konar sjálfheldu með það hvernig þetta lítur út í augum umheimsins vegna þess að nú þegar er farið að selja talsverðan hluta af raforkuframleiðslunni innan lands í formi vottorða, ekki raforkunnar sjálfrar, að miklum hluta til útlanda, fyrir þá fjármuni sem ég nefndi áðan. Flest orkufyrirtækin gera þetta.

Ég velti fyrir mér áhrifunum, bæði í áliti á Íslandi, ef það er í bókhaldinu að við séum með kol og kjarnorku sem okkar helstu orkugjafa. Það er ljótt afspurnar þegar raunin er allt önnur. En þetta er auðvitað bara blekkingaleikur, í raun og veru.

Markmiðið hjá Evrópusambandinu er að auka hlut endurnýjanlegra orkugjafa. Markmiðið er fallegt og allra góðra gjalda vert en virkar svona illa í okkar tilviki vegna þess að við erum ekki tengd. Þetta er kannski ágætt í Evrópu þegar kjarnorkuver er í næsta garði og raforkan kemur þaðan og maður vill auðvitað ekki láta það spyrjast að maður noti slíka orku og kaupir sér þess vegna vottorðið þó að haldið sé áfram að fá raforkuna frá kjarnorkuverinu. Þá borgar maður í þennan sjóð til að efla (Forseti hringir.) endurnýjanlega orkugjafa.