149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:36]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður hefur töluvert fjallað um, og byggt á staðreyndum og gögnum, breytingar á raforkuverði sem hafa orðið við innleiðingar á Evróputilskipununum öllum saman.

Mig langar að spyrja þingmann hvort það sé ekki svolítið sérstakt í ljósi þess að raforkuverð hefur hækkað að það var akkúrat það sem í það minnsta hluti þingmanna vinstri flokkanna á sínum tíma gerðu athugasemdir við þegar verið var að innleiða þessar tilskipanir, þar á meðal hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon, eins og svo eftirminnilegt er. Hv. þm. Ögmundur Jónasson varaði mjög við þessu og varar reyndar enn við því, hann er ekki búinn að skipta um skoðun eins og núverandi forseti þingsins. Það er því vert að spyrja: Hvað gerir það að verkum að Vinstri græn hafa ekki lengur áhyggjur af því að orkan sé orðin verslunarvara, það sé búið að markaðsvæða auðlindirnar í landinu? Er málflutningur þeirra álíka trúverðugur og varðandi aðildina að NATO? Þessu er slegið upp rétt fyrir kosningar og svo hafa þau ekki gert meira með þetta. Er þetta sama með orkuna? Er þetta orðið eins og hver önnur verslunarvara sem á að lúta lögmálum markaðarins og menn gera ekkert með það þó að sagan segi að raforkuverð hafi hækkað í takt við lagabreytingar og innleiðingarnar allar saman?

Það má velta fyrir sér hvort þessum flokki sé treystandi til framtíðar til að standa gegn því að orkuverð haldi áfram að hækka og innleiða t.d. fjórða orkupakkann án þess að vita hvað í honum stendur, sem við gætum reyndar fengið að vita í dag ef menn hefðu áhuga á því. Ég er svolítið hissa þessari miklu stefnu- og áherslubreytingu sem orðið hefur hjá þessum flokki.