ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Bara á meðan ósamræmið er í klukkunni en ekki í kollinum er þetta í lagi.
Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir andsvarið. Ég held að það hvarfli ekki að neinum að hæstv. forsætisráðherra sé viljandi með einhverja útúrsnúninga eða hálfsannleik í þessum efnum. Það dettur engum í hug um þennan mæta forsætisráðherra okkar. Ég held að það hljóti að skýrast af upplýsingagjöf, þá væntanlega úr stjórnsýslunni eða samstarfsráðherra sem fer með þessi mál. En það þarf enginn að velkjast í vafa um að sú afstaða hæstv. forsætisráðherra sem fram kom í óundirbúnum fyrirspurnum í gær, stenst enga skoðun þar sem fullyrt er án allra fyrirvara að allir lögfræðingar séu sammála um að engin skylda verði leidd af orkupakkanum.
Nú þegar það liggur fyrir held ég að komin sé enn ein ástæðan til þess að við tökum nokkur skref til baka, tökum málið af dagskrá, frestum því til haustþingsins og reynum að vinna það í bærilegri sátt þannig að sem flestir geti vel við unað. Það fer enginn viljandi fram með svona misskilning, því að auðvitað flýtur það upp á einhverjum stigum málsins, eins og t.d. í þessu tilviki þegar fullyrt er fyrirvaralaust að allir lögfræðingar séu sammála um að engin skylda verði leidd af orkupakkanum. Auðvitað verður það leiðrétt þegar raunin er önnur. Svo ég svari spurningu hv. þingmanns þá hvarflar ekki að mér að þetta séu einhverjar æfingar af hálfu hæstv. forsætisráðherra.