ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Ef ég man rétt er vikið að því, í það minnsta í neðanmálsgrein nr. sextíu og eitthvað, í áliti Friðriks Árna og Stefáns Más, að verði höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum út af svipuðu tilviki og hér um ræðir, þá segja þeir að það kunni að reynast Íslandi erfitt, þeir orða það einhvern veginn þannig.
Annar lögmaður að nafni Eyjólfur Ármannsson, segir í einu af álitum sínum, og er rauninni að segja nákvæmlega það sama og Arnar Þór Jónsson í Facebook-færslu sinni, að það sé kristaltært að einkaaðili sem fara mun í slíkan leiðangur muni hafa réttinn sín megin.
Það má hins vegar segja að orð hæstv. forsætisráðherra hafi vonandi kveikt í fleirum en héraðsdómaranum Arnari Þór Jónssyni til að vekja athygli á því að upplýsa þurfi málið betur. Ég lít svo á að þessi vinsamlega ábending héraðsdómarans sé fyrst og fremst til þess skrifuð að hæstv. forsætisráðherra og aðrir haldi ekki áfram að fara með fleipur eins og hér virðist vera, væntanlega algerlega óafvitandi, þannig að ég taki það nú líka fram.
Þannig að ég spyr hv. þingmann hvort það sé ekki ráð að ef misskilningur er uppi, ekki síst meðal fylgjenda málsins, að setjast niður og skýra það enn frekar.