ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég vil koma inn á það sem við fengum fréttir af núna fyrir skömmu, þ.e. mjög athyglisvert innlegg frá héraðsdómara varðandi það að fyrirvararnir komi ekki til með að halda sem ríkisstjórnin hefur lagt svo ríka áherslu á að verði raunin, þ.e. að þeir muni halda. Það undirstrikar enn og aftur mikilvægi þess að fram fari vönduð umræða fram um þetta mál. Það hefur ekki verið að mínu mati.
Ég tek undir það með hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni að forsætisráðherra er vel inni í þessu máli, að ég tel. Hún er greind kona og kynnir sér mál vel. En maður veltir því fyrir sér hvort hún hafi fengið réttu upplýsingarnar, t.d. bara álitsgerð Carls Baudenbachers, sem hefur mikið verið rædd. Ég tel að þar séu pólitískar fullyrðingar sem standast engan veginn og koma á óvart, eins og ég fór yfir í fyrri ræðu minni hér.
En ég vil taka undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni, að auðvitað á í þessum kringumstæðum, þegar nýjar upplýsingar koma fram, bæði erlendis frá og frá mikilsvirtum lögmönnum hér heima, að fresta málinu. Það er enginn skaði skeður með því og ekki fyrir ríkisstjórnina heldur.
Ég vildi bara árétta það og þakka hv. þingmanni (Forseti hringir.) fyrir að vekja athygli á þessu nýja innleggi inn í umræðuna.