ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Það er náttúrlega bara blaður sem engin innstæða er fyrir að einhverjir vilji hverfa til leyndarhyggju um raforkuverð. Ef menn vilja hafa aðrar leiðir til þess er hægt að fara þær leiðir.
Ég hef svo sem ekki heldur séð að ekki sé hægt að hafa raforkuverð upplýst eða lifandi fyrir alla Íslendinga eins og tæknin er í dag, án þess að þurfa endilega að vera að innleiða orkupakka. Þetta er aðeins ein blaðran enn hjá því ágæta fólki sem telur að aðrir eigi að fara með stjórn landsins okkar, þ.e. að við undirgöngumst Evrópuvaldið í Brussel. Það er ekkert nýtt.
Ég sakna þess hins vegar að þetta ágæta fólk komi í ræðustól og tali meira fyrir málinu, í það minnsta svari spurningum og hreki þær spurningar sem við höfum haft uppi. Það er vitanlega erfitt að eiga við umfjöllun þegar hún er öll í fyrirsögnum og fólk að reyna að ná sér í það sem kallaðir eru klikkir eða smellir á Facebook eða komast í fréttirnar, bara út á að segja eitthvað. Það er oft og tíðum mjög innihaldslaust blaður sem kemur fram þá, því miður.
Auðvitað hef ég skilning á því að andstæðingar Miðflokksins í pólitík séu ekki ánægðir með þá afstöðu sem flokkurinn hefur t.d. gagnvart Evrópusambandinu eða því Evrópumáli sem þessi orkupakki er, en við höfum marglýst því yfir að við tölum ekki fyrir því að hætta með EES-samninginn eða hætta samstarfi við Evrópuríki, alls ekki. Það vakir ekki neitt slíkt fyrir okkur. (Forseti hringir.) En við munum áfram standa stolt vörð um þjóðarhagsmuni.