149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[18:52]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og tek heils hugar undir það hjá honum að það sé tvennt ólíkt að standa vörð um þjóðarhagsmuni og síðan að standa á rétti sínum í tvíhliða samningum, sem EES-samningurinn er náttúrlega.

Hv. þingmaður nefndi að hér virðast þingmenn ekki vilja koma og taka þátt í þessari umræðu með okkur Miðflokksþingmönnum. Maður spyr sjálfan sig hvers vegna svo sé. Ég veit t.d. til þess að töluvert margir þingmenn hafa ekki tekið til máls í umræðunni, ekki tjáð sig um innleiðinguna, þetta stóra mikilvæga mál. Þeir sömu þingmenn kvarta yfir því að við séum að hertaka þingsal og frysta öll önnur mál o.s.frv., sem sýnir hvers lags málflutningur þetta er. Ég held það sé lágmark ef menn vilja reyna að flýta fyrir umræðunni að koma þá og taka þátt í henni og svara þeim fullyrðingum sem stjórnarliðar og þeir sem eru hlynntir málinu hafa komið með og við sjáum trekk í trekk.

Ég nefndi að hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefði sett fram ákveðnar fullyrðingar á netmiðlum. Þar kom hún enn og aftur inn á samkeppni og neytendamál, að þetta væri svo mikið neytendamál. Við erum margsinnis búin að hrekja þá staðreynd, neytendur hafa ekki haft nokkurn hag af þessum orkupökkum, af markaðsvæðingu raforkunnar. Við erum búin að sýna fram á tugi prósenta hækkun á rafmagni til húshitunar, til almennings, til fyrirtækja í landinu og eitthvað sem heitir neytendavernd er algerlega staðlausir stafir. En samt sem áður hamra þau á þessu og reyna að sía því inn í almenning að þetta sé svo mikil neytendavernd, sem er rangt.