ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég hef áður úr þessum ræðustól minnst á tregðu manna við að játa á sig mistök eða játa að þeir séu ekki alveg á réttri leið og það sé kannski skynsamlegra að velja aðra leið. Í þessu máli hér og nú er ekki pláss fyrir svona prívat-stolt. Það er ekki pláss fyrir að þingmenn og stjórnmálamenn gangist ekki við því að þeir hafi valið ranga leið, vilji víkja af henni og fara réttari og betri leið, í ljósi nýrra og betri upplýsinga.
Ég er næstum því viss um að margir þeir þingmenn sem höfðu í upphafi efasemdir um þetta mál — og ég held því fram úr þessum stól — hafi jafnvel verið blekktir til þess að fylgja málinu með því að veifa framan í þá þessum fyrirvörum og segja: Nú er allt í gadda slegið. Við erum með fyrirvara sem eru ótvíræðir. Það er óhætt að styðja þetta mál. Menn sögðu það meira að segja hér við 1. umr. sem voru efasemdarmenn áður: Ég var ekki viss um þetta mál. En þegar ég heyrði af þessum fyrirvörum varð ég rólegur og sagði: Nú styð ég málið.
Ég trúi ekki öðru en að runnið hafi tvær grímur á þá þingmenn. Ég trúi ekki öðru en að þeir muni nú segja eins og við: Er ekki rétt að staldra við? Er ekki rétt að fara betur yfir þetta mál? Það er risastórt. Það er ekki pláss fyrir mistök í þessu máli, þannig að við skulum vanda okkur. Við skulum fresta málinu.