ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er skylda okkar. Við, kjörnir fulltrúar á Alþingi, höfum margar skyldur. Við höfum skyldur við stjórnarskrána sem við höfum svarið eið að. Í þessu máli er, svo maður tali varlega, alla vega reynt verulega á þanþol stjórnarskrárinnar, jafnvel að ákvæði hennar séu brotin. Það þýðir ekki að segja: Ja, við erum svo oft búin að stíga skrefið alveg út á línuna sem stjórnarskráin þolir. Það eru ekki rök.
Við höfum líka skyldur gagnvart fólkinu í landinu um að vanda okkur við þau þingmál sem við afgreiðum, hvað þá þegar þau eru af þessari stærðargráðu, eins og ég hef áður sagt. Það er skylda okkar að koma í veg fyrir það þegar við finnum á okkur, þegar við vitum, þegar við fáum rök á hverjum degi og ný rök á hverjum degi, um að hér sé verið að gera mistök. Þá berum við þá skyldu að móa við, segja: Nei, hingað og ekki lengra. Skoðum málið. Leitum breiðrar samstöðu. Það er líka skylda okkar.
Við sem höfum haft í frammi andóf í málinu erum ekki bara að hugsa um okkar kjósendur, þó að við viljum auðvitað standa við kosningaloforð okkar, öndvert við það sem ríkisstjórnarflokkarnir þrír eru núna að svíkja akkúrat í þessu máli. En það er ekki það sem málið snýst um. Málið snýst um að hér verði ekki gerð óendurkræf mistök. Það er það sem við viljum koma í veg fyrir.