ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta er mjög mikilvægt innlegg hjá hv. þingmanni, að hér verði ekki gerð óendurkræf mistök. Um það snýst málið. Stjórnvöld, ríkisstjórnin, meðreiðarsveinar eða flokkar sem styðja þetta mál, eru að innleiða orkutilskipun Evrópusambandsins sem þau kalla orkupakka þrjú til framtíðar. Það verður ekki aftur snúið. Ekki nema að segja hreinlega upp EES-samningnum. Við Miðflokksmenn höfum ekki talað fyrir því. Hins vegar er þessi samningur náttúrlega engan veginn sá sami og lagt var upp með í upphafi. Að því leytinu til er mikilvægt í okkar huga að við skoðum kosti og galla samningsins. Það er allt annað en að vera með fullyrðingar um að segja honum upp.
En fyrst og fremst eigum við náttúrlega að nýta okkur þann rétt sem við höfum samkvæmt samningnum og standa keik í þeim efnum, vera ekki að láta einhvern hræðsluáróður þess efnis að samningurinn komist í uppnám, honum verði sagt upp o.s.frv., hafa einhver áhrif á okkur. Ég myndi segja að þetta væri svona ákveðin samningatækni og ég held að hún komi að hluta til frá Evrópusambandinu og hugsanlega frá Noregi líka, þeim sem eru fylgjandi samningnum þar.
En ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Það er mjög mikilvægt að halda því til haga að ekki verður aftur snúið ef þetta verður samþykkt. Við sjáum afleiðingarnar af orkupakka eitt og tvö, hærra orkuverð til heimila og fyrirtækja í landinu, og nú er verið að taka enn þá (Forseti hringir.) stærri skref sem við sjáum fyrir okkur að geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir okkur sem þjóð og heimilin og fyrirtækin í landinu.