149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[21:02]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það væri vel til fundið að fá úr því skorið, og hugsanlega getur hæstv. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og starfandi ráðherra dómsmála, komið hér í salinn og upplýst okkur um hvort það sé einnig skilningur ráðuneytisins, sem skrifaði þetta minnisblað á sínum tíma, að þetta eigi einnig við um landgrunnið og efnahagslögsögu Íslands.

Mig langar aðeins að taka þessa vangaveltu örlítið lengra. Ef við innleiðum þetta, samþykkjum að 72/2009 eigi við um efnahagslögsögu og landgrunn Íslands, erum við þá hugsanlega búin að gefa fordæmi fyrir því að einhvers konar öðrum gerðum, tilskipunum, e.t.v. um eitthvert allt annað málefni, komi frá Evrópusambandinu, segjum einhvers konar nýtingu málma eða eitthvað slíkt í hafsbotninum, inni á landgrunninu, að komið sé fordæmi fyrir því að við höfum gefið eftir umsýslu, völd og stjórnun á landgrunninu? Erum við búin að búa til einhver fordæmi? Það er pæling sem ég held að eigi alveg rétt á sér.

Ég myndi kalla eftir því, virðulegur forseti, að við fengjum skýringu á því hvort það sé þannig að með því að innleiða 72/2009 séum við að viðurkenna að þessi tilskipun gildi einnig um efnahagslögsöguna og landgrunnið, því að það setur málið í aðeins stærra samhengi, svo ekki sé meira sagt.

Það þrengir enn þá meira möguleika Íslands til að standast málssókn frá einkaaðila sem vill leggja sæstreng í efnahagslögsöguna og nota til þess íslenska landgrunnið, ef slíkur aðili myndi reka mál fyrir EFTA-dómstólnum.