ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það leiðir mig að því að vitna til skrifa lögmannsins Arnars Þórs Jónssonar á Facebook í gærkvöldi þar sem hann fjallaði um fyrirvara og svo sæstreng. Hann heldur því fram að ef íslenska ríkið reynir að standa í vegi fyrir því að strengur verði lagður verði höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi. Ég vil reyna að samtvinna það við það sem hv. þingmaður fjallaði um í ræðu sinni áðan, að lög Evrópusambandsins eru þá jafnvel orðin æðri okkar eigin lögum. Það þýðir í þessu sambandi að fordæmið liggur kannski nú þegar fyrir með dóminum í Noregi og samkvæmt þessu minnisblaði frá því í apríl 2014. Þar eru mörg vafaatriði sem við þyrftum að geta fengið svör við, vegna þess að landgrunn Íslands eru ekkert annað en auðlindir, alveg eins og auðlindir á landi. Er landgrunn orðið vara? Er það orðið vara á þessu sameiginlega evrópska raforkusvæði? Hvernig lítur hv. þingmaður á það? Er um að ræða einhverja samtvinnun þarna? Við þyrftum að fá einhver svör til að komast aðeins áfram með þessi atriði.