149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:00]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Hann gerir að umtalsefni einn þátt í málinu þar sem upplýsingar af hálfu ríkisstjórnarinnar, utanríkisráðherra og þeirra sem að málinu standa, eru ófullnægjandi. En það er eins og það einkenni málið í heild. Það vantar svör við fjölmörgum spurningum. Hvað liggur á í málinu? Ég leyfi mér að skjóta inn rannsóknartilgátu sem menn gætu velt fyrir sér. Kannski er betra að það líði lengri en skemmri tími milli þess sem ríkisstjórnarflokkarnir samþykkja þetta og til kosninga. Það gæti verið skýringin. Hvað liggur á?

Annað: Margnefndir fyrirvarar. Það fást engar upplýsingar um það nákvæmlega hvar hins lagalega fyrirvara er að leita. Kenningarnar um það eru orðnar svo margar að ekki verður tölu á þær komið.

Einn ágætur hv. þingmaður úr stjórnarandstöðu, sem er að vísu mjög einbeittur stuðningsmaður þriðja orkupakkans, úr flokki sem lýsti yfir stuðningi við málið áður en það var svo mikið sem lagt fram, Þorsteinn Víglundsson, lýsti því í dag, ef ég tók rétt eftir, að fyrirvarans væri að leita í lagafrumvarpi hæstv. iðnaðarráðherra. Það er ekkert upplýst um samhengið við fjórða orkupakkann. Það er ekkert upplýst um hvaða greining hefur farið fram á þeirri stöðu sem uppi yrði eins og nú horfir, að erlendir aðilar, gráir fyrir járnum, leggi hingað sæstreng og fari í skaðabótamál í framhaldi (Forseti hringir.) hugsanlegrar neitunar. Málið er ekki fullnægjandi upplýst.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvaða skýringar telur hann (Forseti hringir.) á því að fjölmargir þættir í málinu eru (Forseti hringir.) ekki ljósari af hálfu stjórnvalda en raun ber vitni?