149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:10]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M):

Herra forseti. Þar sem ég veit að sá hæstv. forseti sem nú er í forsetastóli er mikill áhugamaður um norsk stjórnmál og norræna samvinnu almennt ætla ég að nota tækifærið á meðan sá hæstv. forseti er með okkur og klára ræðu mína um norsku tenginguna, þ.e. umræðuna sem verið hefur um þetta mál í norskum stjórnmálum og hvað við getum hugsanlega lært af henni.

Ég var byrjaður að rekja nokkra punkta úr grein Aftenposten í endursögn Viðskiptablaðsins og ætla að halda aðeins áfram, til að varpa frekara ljósi á þetta mál. Þetta er lýsing á stöðunni í norska þinginu. Þar segir, með leyfi forseta:

„Andstæðingar pakkans færðu rök fyrir því að hann fæli í sér framsal á yfirráðum yfir orkuauðlindum til stofnana ESB, hækkun raforkuverðs og skerta samkeppnishæfni norskrar stóriðju. Stuðningsmenn pakkans færðu hins vegar rök fyrir því að hann hefði ekkert með eignarhald yfir orkuauðlindum eða auðlindastjórnun að gera — það væri einfaldlega hræðsluáróður.“

Þetta er náttúrlega mjög kunnuglegt, herra forseti.

Svo segir:

„Lagt var til að atkvæðagreiðslunni um orkupakkann í Stórþinginu yrði frestað, sérstaklega í ljósi óskýrrar afstöðu íslenskra stjórnvalda til orkupakkans. Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti ályktun á landsþingi síðustu helgi“ — þetta er sem sagt skrifað í mars 2018, herra forseti, fyrir um ári síðan — „um að flokkurinn hafni frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins. Flokksþing Framsóknarflokksins tók í svipaðan streng. Frestunartillagan var þó felld í norska Stórþinginu.“

En hvernig gerðist það? Hvernig gerðist það að frestunartillagan var felld og ákveðið að afgreiða málið? Það gerðist eftir að ríkisstjórnin, hin tiltölulega Evrópusinnaða ríkisstjórn, tveir miklir Evrópusambandsflokkar þar, af þremur, ákvað að ganga til samninga við norska Verkamannaflokkinn sem féllst á að hleypa málinu í gegn, gegn því að þingið samþykkti samhliða átta fyrirvara.

Ég er búinn að rekja þessa fyrirvara, herra forseti. Það var reyndar um miðja nótt. Ég er ekki viss um að allir hafi náð að fylgjast með þeirri yfirferð. Ég ætla samt ekki að fara í gegnum það allt núna því að ég hef einfaldlega ekki tíma til þess. En ég ætla að nefna það almennt um þessa fyrirvara að þeir eru mjög lýsandi fyrir það sem norska þingið taldi ástæðu til að hafa áhyggjur af varðandi þennan þriðja orkupakka. Eitt af því eru áhyggjur af því að hægt sé að knýja á um að lagður verði sæstrengur, að Evrópusambandið, eða þessi ACER-stofnun, geti knúið á um að lagður verði sæstrengur til Noregs.

Það er sérstaklega áhugavert í ljósi þess að það eru þegar tveir sæstrengir tengdir við Noreg, en þó töldu þeir að Evrópusambandið gæti knúið á um þann þriðja. Það ætti að vera enn meira áhyggjuefni fyrir okkur Íslendinga, því að lönd sem ekki eru tengd fyrir eru miklu meira forgangsverkefni hvað slíkt varðar en lönd sem búið er að tengja. Þeim mun meiri áhyggjur ættum við að hafa ef norska þingið sá ástæðu til þess að reyna að gera fyrirvara eða fá undanþágu frá slíkum kvöðum.

En nú eru púslin öll að raðast saman eftir því sem þessari umræðu vindur fram: Þessi norski fyrirvari, sem sýnir áhyggjur norska þingsins eða ótta við það að Evrópusambandið knýi á um lagningu sæstrengs; skrif dómarans Arnars Þórs Jónssonar í dag, sem staðfesta í rauninni að ekkert hald sé í fyrirvörunum ef þeir aðilar sem vildu leggja sæstreng höfði samningsbrotamál; og svo frétt í Sunday Times frá því um helgina sem upplýsir um að fyrirtæki, sem safnað hefur saman einum 25 fjárfestum, ef ég man rétt, sé búið að fjármagna lagningu sæstrengs frá Norðaustur-Englandi til Íslands og vanti ekki annað til að geta hafist handa en stimpil frá breska viðskiptaráðherranum.

Svona raðast púslin saman eitt af öðru, herra forseti, (Forseti hringir.) þrátt fyrir að stjórnarliðar treysti sér ekki til að koma og skýra málin. En það myndi örugglega hjálpa ef þeir fylgdust a.m.k. með.