ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er ekki að ófyrirsynju að hann ræðir hina norsku fyrirvara, átta talsins. Þeir hafa beina þýðingu fyrir okkur. Við erum í þeirri stöðu að hér er sagt: Til að óhætt sé að innleiða málið verður að hafa lagalegan fyrirvara. Þá er náttúrlega ákveðinn vandi á höndum. Lagalega fyrirvaranum er bersýnilega ætlað að skapa það réttarástand að hægt sé að halda því fram að innleiðingin á orkupakkanum rekist ekki á stjórnarskrá, vegna þess, ósköp einfaldlega, að þeim réttaráhrifum sem gætu haft slíkt í för með sér er skotið á frest.
Ég þykist þess fullviss að okkar góði, hæstv. forseti, sé vel tengdur við þetta.
En síðan er hitt og það er að lagalegi fyrirvarinn má ekki vera þeirrar gerðar að hann baki okkur ábyrgð, eins og er varað við, til að mynda í álitsgerðinni sem oftast er vitnað til og sem Friðrik Árni Friðriksson Hirst nefnir svo skýrt í viðtali á mbl.is þann 10. apríl sl. þegar hann nefnir bæði möguleikann á samningsbrotamáli og skaðabótamáli. Og í neðanmálsgrein 62 á bls. 35 vara þeir ríkisstjórnina við því þegar þeir segja að hafni Orkustofnun umsókn fyrirtækis um tengingu gæti fyrirtækið snúið sér til ESA með kæru sem gæti endað með samningsbrotamál gegn Íslandi. Slík staða gæti reynst Íslandi erfið.
Maður spyr sig hvers vegna í ósköpunum ríkisstjórnin hafi ekki búið sig frekar undir slíkt mál og afleiðingar þess í ljósi (Forseti hringir.) þess að búið er að vara hana við af hennar eigin lögfræðilegu ráðunautum.