ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti hefur eflaust tekið eftir því eins og ég að hér væri líklega að detta inn eitt púsl í viðbót, mjög áhugaverðar vangaveltur. Spurningin sem lá í loftinu: Eru íslensk stjórnvöld viljandi að setja veika fyrirvara eða gervifyrirvara til þess að vera ekki ábyrg þegar menn höfða mál? Getur verið að einmitt þess vegna hafi orðalagið verið úthugsað, eins og við vorum búin að taka eftir í fréttatilkynningu eftir fund Miguels orkumálastjóra og hæstv. utanríkisráðherra, og eftir fund EFTA-nefndarinnar, þar sem menn passa sig á að láta ekki hanka sig á neinu.
Það sama má segja um orðalagið í greinargerð með tillögunni, sem er ein af tilgátunum um hvar fyrirvarinn sé, þ.e. þetta orðalag í greinargerðinni. Alls staðar eru menn að passa sig á orðalaginu með það að markmiði, að því er virðist, að geta sagt síðar: Nei, við vorum ekki að segja að við værum ekki innleiða, við vorum að innleiða, við innleiddum alveg rétt. Við vorum bara að segja að þetta kæmi ekki til framkvæmda, eins og það var orðað.
Ég tók nefnilega eftir þessu orðalagi strax. Í greinargerðinni stóð ekki: tæki ekki gildi, heldur: kæmi ekki til framkvæmda fyrr en sæstrengur væri kominn. Þegar hingað koma aðilar sem telja að Evrópusambandið, ACER, orkumálastofnun sem fulltrúi þeirrar stofnunar, eigi að aðstoða sig við að koma á þessari tengingu þá séu menn ekki hankaðir (Forseti hringir.) á því að hafa sett raunverulega fyrirvara.