ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það virðist sem svo að hinum lagalega fyrirvara sé fyrst og fremst ætlað að koma á því ástandi að hægt sé að halda því fram að þessi innleiðing stangist ekki á við stjórnarskrá. Þetta er meginniðurstaðan í málinu.
En um leið er önnur meginniðurstaða í málinu, að innleiðingin á pakkanum mun skapa það réttarástand og þá stöðu fyrir Ísland sem aðilar að þessu samstarfi, eftir að hafa innleitt reglugerð 713, að þegar erlendir aðilar, eins og Atlantic SuperConnection, sem hafa verið gerðir að umtalsefni, leita hér eftir tengingu, og höfundarnir, Friðrik Árni og Stefán Már, gera ráð fyrir að réttur aðili til að snúa sér til í því efni sé Orkustofnun en ekki Alþingi, menn taka kannski eftir því líka, að þegar Orkustofnun hefur synjað slíku erindi, í samræmi við þingsályktanir og eindregnar viljayfirlýsingar og allt þetta nokkuð, þá telja þeir að engar haldbærar varnir verði í skaðabótamáli sem þeir aðilar myndu höfða á þeirri forsendu að gengið hefði verið á rétt sem þeir ættu að þessum orkupakka innleiddum.
Fjárhæðirnar þar myndu ekki hlaupa á neinu smáræði. Þetta gerðu menn sér alveg ljóst. Við erum að tala um fjárfestingu sem hleypur á hundruðum milljarða.
Hvar er, að dómi hv. þingmanns, viðbúnaður ríkisstjórnarinnar í þessu og hvar sér hans stað?