149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:28]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég kann að meta hversu strangur hæstv. forseti er í að verja íslenskuna. Við leitumst við að taka mið af þeim ábendingum hæstv. forseta. (ÞorS: Okkar maður.) Vissulega.

Ég kannast við þetta fyrirtæki, atlantshafsofurtenginguna, og hef raunar hitt fulltrúa þessa fyrirtækis í tíð minni í Stjórnarráðinu. Þá þegar voru þeir orðnir áhugasamir um þetta verkefni. Ég sagði að það væri ekki mikill pólitískur vilji á Íslandi fyrir sæstrengslagningu og útskýrði að það helgaðist einkum af því að við sæjum fyrir okkur hærra orkuverð, ef sú yrði raunin, og að við vildum nýta orkuna til atvinnuuppbyggingar innan lands.

Nú tek ég eftir því að þegar þetta fyrirtæki kynnir verkefnið eða þegar það er rætt í grein Sunday Times er einmitt útlistað að tengingin muni leiða til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar á Norðaustur-Englandi. Það er einmitt eitt af þeim svæðum sem eru í forgangi hjá breskum stjórnvöldum varðandi byggðaþróun.

En síðan þá hefur greinilega eitt og annað gerst. Það hafa komið nýjar ríkisstjórnir, hver annarri móttækilegri fyrir hugmyndum að utan, hvort sem þær koma frá aflandskrónueigendum sem vilja láta losa um fjármagnið án þess að greiða nokkurt gjald fyrir það eða frá kaupmönnum sem vilja fá að flytja inn meira af ófrosnu kjöti og ógerilsneyddum matvælum eða frá orkufólki, eins og fulltrúum þessa atlantshafsofurtengifyrirtækis.

Þróunin er öll á sama veg, fyrst og fremst jákvæð viðbrögð íslenskra stjórnvalda. Maður fer að velta fyrir sér í þessu tilviki hvort þetta sé afleiðing þess sama, jákvæðni ríkisstjórnarinnar gagnvart þeim áhuga útlendinga á að fá sínu framgengt, sérstaklega í ljósi þeirra (Forseti hringir.) tilvitnana sem hv. þingmaður las um að þetta væri samstarfsverkefni með ráðherrum úr öllum stjórnarflokkum.