149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:34]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Stefna ríkisstjórnarflokkanna um að koma orkupakka þrjú áfram er nokkuð afdráttarlaus. Í fyrstu var talað um að þetta væri ekkert mál og að búið væri að skoða allt heila málið í þaula. En fljótt kom í ljós að svo var ekki. Allt kapp var þá lagt á að segja okkur að EES-samningurinn væri í hættu ef við samþykktum ekki orkupakka þrjú og aðrar afleiðingar voru dregnar fram ef við ekki samþykktum.

Allt var það með ráðum gert, línan var lögð með þessum hætti.

Ég sé þetta þannig að ef við nýtum ekki þá lögbundnu leið að vísa orkupakka þrjú til sameiginlegu EES-nefndarinnar að þá fyrst verði EES-samningurinn í uppnámi. Við hér höfum alla vega lagt áherslu á að líta beri vel og vandlega á lögfræðiþáttinn, en pólitíkin mun einnig koma þar fram.

Ef við leggjum kalt mat á rökin með og á móti vega rök okkar sem erum á móti pakkanum þyngra. Það er furðulegt að stjórnarflokkarnir, sem allir eru á móti því að ganga í Evrópusambandið, skuli nú ætla að færa yfir okkur regluverk þess sem verður ofar okkar eigin. Það verður að segjast eins og er að við höfum saknað þess að fjölmiðlar, og þá sérstaklega ríkisfjölmiðillinn, skuli ekki taka stöðuna á ný og miðla þeirri þekkingu sem komið hefur fram undanfarna daga hér í þingsal, með því að við höfum farið á dýptina í umræðunni, vil ég leyfa mér að segja. Það hefur verið áberandi í umræðunni að þeir sem standa á móti innleiðingu á orkupakka þrjú séu jafnvel ásakaðir um rangfærslur.

Þess vegna þætti mér gott ef Ríkisútvarpið tæki djúpan snúning á málinu, ef við getum orðað það þannig.

Við þetta má bæta að við höfum ítrekað kallað eftir svörum við spurningum sem við höfum lagt fram, þá fyrst væri hægt að nálgast einhverja niðurstöðu, einhvern grundvöll fyrir það hvernig við kæmumst áfram. Mér finnst það sérstakt að ríkisstjórnarflokkarnir ætli að hlýða regluverki Evrópusambandsins þar sem þetta eru ekki flokkar sem vilja ganga í sambandið, alla vega ekki eins og stefna þeirra hefur verið undanfarið. En kannski er það líka breytast. Menn segja ekki frá því. Kannski erum við á hraðferð inn í ESB.

Eins var með fyrirvarana. Fyrst var sagt að þeir væru til staðar en svo var þá hvergi að finna, þrátt fyrir ítrekaða leit. Í umræðum í dag hefur komið fram að hugsanlega hafi þeir aldrei verið til staðar þar sem orðalag þeirra yfirlýsinga og fréttatilkynninga, og guð má vita hvað, var allt í ósamræmi hvert við annað og mjög svo varlega sett fram, eins og fram kom í máli hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar rétt áðan.

Ég get auðvitað tekið heils hugar undir orð Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, þar sem hann skorar á ríkisstjórnina, eins og við hefðum gert hér, að fresta innleiðingu orkupakka þrjú a.m.k. fram á haustið, enda er mikilvægrar ákvörðunar að vænta frá Noregi þann 23. september, eins og margoft hefur komið fram.

Ég tel líka að hæstv. ráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hafi léð máls á akkúrat því fyrir stuttu síðan að fresta orkupakkanum.

Við stöndum frammi fyrir mjög stórri áskorun. Við stöndum frammi fyrir því að auðlindir þjóðarinnar og þar með grunnstoðir samfélagsins eru undir. Það má aldrei vera þannig að við lítum á þær sem vöru, eins og við séum stödd í verslun og getum þar með valið það sem hentar úr hillunni.