149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:42]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Ýmsu er hægt að velta upp sem svari við spurningu þingmannsins og ég ætla að velja að taka þann hluta þar sem þingmaðurinn fjallaði um ríkisfjölmiðilinn, einmitt vegna þess að í kvöld birtust fréttir þar sem viðtöl voru tekin við fólkið á götunni sem benti á, að ég held í nær öllum tilfellum, að það óskaði eftir því að fá frekari upplýsingar og kynningu á því hvernig málið stæði.

Ég nefndi í ræðu fyrr í dag að það mætti jafnvel kalla til fræðimenn, gjarnan á öndverðri skoðun, til að fá upp þá fleti sem við höfum verið að draga fram með því gefa okkur þann tíma sem okkur finnst að þurfi til að velta við öllum steinum í málinu. Það eru alltaf að koma nýjar og nýjar upplýsingar og það vill oft verða þannig að þegar maður kafar ofan í mál vakna enn frekari spurningar. Þetta er dæmi um það.

Ég tek undir orð hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar um þá fræðimenn sem hann nefndi. Það er enginn vafi á að þeir eru mjög hlutlausir og vandaðir og vilja greinilega hafa vinnu sína sem besta úr garði gerða.