149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:44]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Svo vill til að fyrrverandi hv. þm. Ögmundur Jónasson lét hafa eftir sér að á sínum tíma hefðu orkupakki eitt og orkupakki tvö runnið í gegnum Alþingi nánast óræddir. Það var reyndar orkupakki tvö, ef ég man rétt, sem hafði í för með sér að við þurftum — eða þurftum reyndar ekki heldur skiptum upp orkufyrirtækjunum okkar í framleiðslu og dreifingu. Við innleiddum þennan pakka svo kaþólskt að páfinn roðnaði og við fengum í sjálfu sér sérstök verðlaun, herra forseti, frá Evrópusambandinu fyrir að hafa innleitt pakkann svona rösklega.

Þess vegna segi ég að ef ekki hefði komið til þess að þingmenn Miðflokksins hefðu aðeins móast við í örstuttan tíma út af orkupakka þrjú væri hann með sama hætti runninn í gegnum Alþingi, án nokkurrar umræðu, með öllum sínum — ég ætla nú ekki að segja kostum — göllum.

Málið er að þegar svona gerð er innleidd er ekkert spurning um að snúa við, hvorki á miðri leið né þegar áfanganum er náð og segja: Heyrðu, ég ætlaði ekki alveg að segja þetta. Ragnar Reykás býr ekki í Evrópusambandinu og það er ekki hlustað á hann þar.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji ekki í ljósi allrar þeirrar umræðu sem fram hefur farið um þetta mál rétt að staldra við, kanna betur grundvöllinn og fresta málinu fram á haustið.