149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:48]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir ræðuna. Þingmanninum varð tíðrætt um EES-samninginn, það sem snýr að okkur og það sem við höfum fengið út úr honum. Það hefur gengið mjög vel þau ár sem sá samningur hefur verið í gildi, að stærstum hluta vegna þess að við höfum ekki mikið verið að setja á það hvernig innleiðingar hafa verið. Það hefur aldrei komið til þess að við höfum nýtt okkur það sem er í 102. gr. í samningnum, að senda mál aftur til sameiginlegu nefndarinnar. En við höfum rætt það mikið núna að kannski sé kominn tími til.

Þá er talað um að EES-samningurinn gæti verið í uppnámi. Ég tók eftir því að þingmaðurinn nefndi það í ræðu sinni hvort EES-samningurinn væri ekki frekar í uppnámi ef orkupakkinn yrði samþykktur. Langar mig þá að spyrja þingmanninn hvort hún geti svarað því í stuttu máli hvað hún eigi við og biðja hana að færa fyrir því einhver rök.

Og síðan mun ég koma með aðra spurningu í seinna andsvari mínu. Ég sé nú reyndar að ég hef tíma til þess.

Talandi um rangfærslur — ég árétta það á eftir að við höfum verið sökuð um rangfærslur æ ofan í æ í umræðunni undanfarið. Hverjar hafa helstar verið þær ávirðingar um rangfærslur?