149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:55]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Við getum haldið því fram að ef við förum með orkupakka þrjú í gegn núna, án þess að setja lögbundna fyrirvara á þeim stað og akkúrat á þessum tímapunkti, þ.e. að fá ESA eða sameiginlegu EES-nefndina til þess að setjast niður með EFTA-löndunum til að ná sameiginlegum grundvelli — þ.e. að allir aðilar séu á sömu blaðsíðu, vegna þess að við viljum gjarna halda í EES-samninginn. Okkur þykir hann alveg ágætur. En það er sá grunnur, sú tímasetning og sá aðili sem best væri að leita til núna.

Ef við gerum það ekki getur skapast skaðabótaskylda og ýmsir aðilar gætu hreinlega farið í mál við íslenska ríkið fyrir að hafa ekki staðið rétt að málum. Mér finnst dálítið klókt af hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni að muna eftir þessu með námskeið bílstjóra vegna þess að það var mál sem rann í gegnum þingið án þess að það fengi nægjanlega gagnrýna umfjöllun. Ég vil segja það þannig. Við hleyptum einhverju í gegn sem sem hentaði okkur ekki alveg. En við einhvern veginn létum það fara. Það er miður.