149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[22:57]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Mig langar í þessari ræðu að fara stuttlega yfir tímalínuna í því máli sem við erum að ræða og höfum rætt nokkra stund. Málið kom eiginlega fyrst fyrir sjónir okkar alþingismanna rétt fyrir jólahlé í vetur þegar átti að henda því inn í Alþingi, ef ég man rétt, á síðasta fundardegi fyrir jól. Við áttum bara að kyngja því að málinu, í allri sinni stærð, yrði kastað inn í þingið, eins og kerlingin kastaði sál Jóns í skjóðunni inn fyrir gullna hliðið á síðustu stundu nokkru fyrr. Það tókst ekki þar sem því var mótmælt mjög harðlega. Um hríð gerðist ekki neitt með málið, nema hvað ég hef grun um að tíminn frá jólum og fram í apríl, eða í lok mars, þegar málið kom loks fram, hafi verið notaður til að snúa þeim þingmönnum stjórnarliðsins sem voru ekki 100% vissir í þeirri sök að málið væri gott. Þá fundu menn upp fyrirvara. Allnokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem voru í vafa — mér fannst t.d. hæstv. forseti aldrei neitt mjög sannfærður en hann lét sig hafa þetta. Hv. þm. Páll Magnússon, Njáll Trausti Friðbertsson og fleiri komu og vitnuðu og sögðu: Við vorum mjög óvissir en síðan kom utanríkisráðherra með fyrirvarana. Nú er þessi samningur kominn með belti og axlabönd.

Ég veit ekki hvaða aðila menn fengu til að fara með málið í gegnum þingflokk VG. Kannski hefur það verið hæstv. utanríkisráðherra sjálfur, ég veit það ekki. Alla vega hafði það í för með sér að Vinstri græn eru nú leiðandi afl í því á Íslandi að markaðsvæða orkuauðlindir þjóðarinnar. Sú kynning hefur tekist bærilega vel, tel ég, en ég átti ekki von á þessu.

Þriðja hjólið undir vagninum, Framsóknarflokkurinn, tók þessu svo bókstaflega að sögn hv. þm. Silju Daggar Gunnarsdóttur, að Framsóknarflokkurinn er nú með belti og axlabönd, í smekkbuxum, með álímdan hártopp og í nýjum skóm. Það vantar ekkert nema bara rautt trúðsnef, þá er búningurinn fullkominn. Samningurinn flaug þar í gegn einnig, eftir þessi ósköp. Síðan var málið lagt fram. Það átti að keyra það í gegn með nákvæmlega sama hætti og gert var með fyrsta og annan orkupakkann, þ.e. lauma því í gegnum þingið án umræðu, nánast án þess að nokkur vissi af, og alls ekki að upplýsa þjóðina um innihaldið, alls ekki.

En síðan fór á kreik hópur sem kallaður hefur verið þjóðernispopúlistar og einangrunarsinnar. Sá hópur hitti aðra einangrunarsinna og þjóðernispopúlista eins og Ómar Ragnarsson, Ögmund Jónasson og fleiri alkunna þjóðernispopúlista. Síðan bárust líka mótmæli inn í þingið frá garðyrkjubændum, sem eru alræmdir þjóðernispopúlistar, merkja tómatana sína með íslenska fánanum. Frá Landssambandi bakarameistara, sem bakaði fullveldisköku í fyrra. Þjóðernispopúlistar, allt saman. Frá ASÍ, frá Hagsmunasamtökum heimilanna. 70% af umsögnum sem birtust um málið voru neikvæðar.

Samt átti að þröngva málinu í gegnum þingið, helst án þess að þjóðin vissi af.

En það vill þannig til, herra forseti, að íslenskur almenningur er upp til hópa vel að sér, árvakur og lætur ekki bjóða sér hvað sem er. Fyrir það fólk höfum við staðið hér í smátíma, nokkrar nætur, og andmælt þessari þingsályktunartillögu (Forseti hringir.) og farið fram á það, og gerum það enn, að afgreiðslu hennar verði frestað. Það er okkar einlæga ósk.