149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:08]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir. Já, það er nefnilega það. Ef fyrirvararnir eru ekki túkalls virði, eins og sýnt hefur verið fram á, er ekki mikið eftir til að halda buxunum uppi, eins og hefur verið sagt hér undanfarið. Í raun og veru er alveg kýrskýrt í mínum huga það sem við höfum haldið fram allan tímann, að málið sé þannig vaxið að því beri að fresta, vísa orkupakkanum frá í bili, senda hann aftur til sameiginlegu EES-nefndarinnar, og kemur fram í 102. gr. EES-samningsins að ekkert óeðlilegt sé við það. Þar verði svo um búið að hann haldi buxum uppi og við getum tekið hann aftur til innleiðingar eða athugunar þegar svo hefur farið.

Ég vona að sá tími sem hefur farið í þetta, og kannski verður hann eitthvað áfram, verði til þess að stjórnvöld sjái að sér og endurskoði þessa stefnu sína í að innleiða pakkann og fari þessa leið. Fram hefur komið í ræðum að hæstv. iðnaðarráðherra sagði í viðtali síðasta haust að ekkert væri athugavert við það að fresta málinu til haustsins.