149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:10]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ljúft er mér að nefna nafn Arnars Þórs Jónssonar, héraðsdómara í Reykjavík, sem er mikill heiðursmaður og lögspekingur góður. En það er ég hér um bil viss um að ef mál eins og þetta — nú hefur hæstv. forseti sem nú situr haft að ævistarfi að stunda lögfræði og kenna hana — hefði rekið á hans fjörur, svo vanbúið sem þessi þingsályktunartillaga er, hefði því verið fleygt út úr dómsal umsvifalaust. Það er einmitt það sem lögspekingar, eins og áðurnefndur Arnar Þór Jónsson og fleiri hafa fullyrt, að ef til málarekstrar kæmi út af innleiðingu þessa orkupakka, eins og málið er nú búið, kæmi í ljós, eins og ég orðaði það áðan, að þeir fyrirvarar sem gerðir voru eru ekki pappírsins virði. Málið myndi enda með því að við myndum sitja uppi með reikning sem væri feitari en líklega nokkur reikningur sem við höfum lengi fengið.

Komið var í veg fyrir að við fengjum Icesave-reikninginn á sínum tíma með svipaðri baráttu og hér fer fram nú, með því að alþýða landsins reis upp, alveg eins og hún hefur gert í þessu máli, og eru sirka 62% á móti þessum samningi. Þess vegna er það einlæg von mín og ósk, enn einu sinni, að ríkisstjórnarflokkarnir sjái að sér, hlusti á fólkið á götunni og fresti framgangi málsins.