ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég staldraði við í ræðu hans þar sem þar var komið sögu í máli hans að í þessu máli birtist Vinstrihreyfingin – grænt framboð, VG, eins og stundum er sagt í daglegu tali, sem leiðandi afl í að markaðsvæða orkuna, eins og hv. þingmaður komst að orði. Þetta er forystuhlutverk í því verkefni að markaðsvæða orkuna.
Herra forseti. Sú stefna sem birtist þarna af hálfu hins leiðandi afls gengur þvert á það sem kalla má að sé samfélagslegur sáttmáli á Íslandi um að helstu orkufyrirtækin, lunginn af orkukerfi landsmanna, séu í almannaeigu. Vinstrihreyfingin – grænt framboð, miðað við það sem hv. þingmaður segir, hefur tekið að sér forystu við að brjóta þann þjóðþrifasáttmála á bak aftur. Það er ekkert minna.
Eins og Þorsteinn Pálsson vekur máls á í pistli á vefsíðu sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar, með leyfi forseta:
„Samtímis og menn samþykkja prinsippin í þessu máli eru þeir í raun að viðurkenna þau prinsipp sem full aðild að Evrópusambandinu er reist á.“
Telur hv. þingmaður að VG sé ekki bara leiðandi afl í markaðsvæðingu orkunnar heldur í því að færa okkur nær fullri aðild að Evrópusambandinu? (Forseti hringir.) Og telur hv. þingmaður að þetta sé í samræmi við grundvallarstefnu þess flokks eins og hún hefur verið kynnt?