149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:17]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og fyrir að varpa ljósi á söguna, þó að hún nái ekki langt aftur í tímann. En fyrst hv. þingmaður tekur virkan þátt hlýt ég að gera slíkt hið sama. Ég var viðstaddur þennan fund og þar var annar ræðumaður, afar mikilsmetinn, Styrmir Gunnarsson ritstjóri. Þess er skemmst að minnast að í eins konar stjórnarkreppu 1979, þegar erfiðlega gekk að koma saman ríkisstjórn, ritaði hann um það sem hann kallaði sögulegar sættir. Hinar sögulegu sættir áttu að felast í því að Sjálfstæðisflokkurinn og forveri VG, Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, Alþýðubandalagið, tækju saman höndum í samstarfi í ríkisstjórn.

Nú hafa þessir flokkar, að breyttu breytanda, tekið saman höndum. Og um hvað? Um að markaðsvæða orkuna og stíga skref inn í Evrópusambandið. Svona er sagan gráglettin, leyfi ég mér að segja. Það er ekki ómerk ræða sem dregur fram slíka þætti.

Ég ætla að leyfa mér að varpa þeirri spurningu fram til hv. þingmanns hvort hann telji að sama skapi, eins og ég spurði að í fyrri spurningu minni, að ákvörðun sem felur í sér að í raun sé verið að viðurkenna þau prinsipp sem full aðild að Evrópusambandinu eru reist á og þar með umtalsverð skref í átt að fullri Evrópusambandsaðild sé í samræmi við grundvallarstefnu Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.