149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:29]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel að þetta mál liggi býsna ljóst fyrir. Annars vegar eru lögfræðilegir ráðunautar ríkisstjórnarinnar sem hún kallaði sjálf til starfa, Friðrik Árni Friðriksson Hirst og Stefán Már Stefánsson, búnir að vara ríkisstjórnina við möguleikanum á slíku samningsbrotamáli og það hátt og snjallt.

Þeir gera það með eftirfarandi orðum á blaðsíðu 35, með leyfi forseta: „hafni Orkustofnun umsókn fyrirtækis“ — um að raforkutengingu sé komið á — „gæti fyrirtækið snúið sér til ESA með kæru sem gæti endað með samningsbrotamáli gegn Íslandi. Slík staða gæti reynst Íslandi erfið.“

Það er ekki eins og þessir menn séu að segja það í lögfræðilegri álitsgerð að beiðni ríkisstjórnarinnar að ríkisstjórnin geti gert sér miklar vonir um að Ísland myndi vinna slíkt mál, öðru nær.

Arnar Þór Jónsson kveður svo skýrt upp úr með þetta, eins og hægt er, þegar hann segir, með leyfi forseta:

„Fyrirvarar Alþingis munu engu skipta þegar búið verður að fjármagna þennan sæstreng …“

Og maður spyr sig: Er það ábyrgðarfull stjórnarframkvæmd að ganga fram með þeim hætti að eiga slíkt mál á hættu, ekki síst í ljósi þess að fjárhæðir í slíku máli yrðu mjög umtalsverðar?