149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:31]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ef ríkisstjórnin skirrist við, heldur málinu til streitu og keyrir það óbreytt í gegnum þingið er hún og stjórnarmeirihlutinn, auk fylgihnattanna, að takast á hendur gríðarlega ábyrgð. Það er ekki einu sinni víst að hún verði dregin til ábyrgðar alveg á allra næstu tímum. Það gæti verið eftir 10 ár, 15 ár.

Það er þess vegna, vegna þess að þetta mál hefur áhrif svo langt inn í framtíðina, sem það er skylda okkar sem hér störfum að ganga þannig frá málinu að það sé reist á fullkomnum lagalegum forsendum. Til þess er aðeins ein leið fær, að hafna orkupakkanum og senda hann í sáttameðferð hjá sameiginlegu EES-nefndinni, samkvæmt 102. gr. í EES-samningnum.

Sú leið — það hefur verið sagt — hefur í för með sér pólitíska áhættu. Hingað var fluttur erlendur sérfræðingur, mjög fær, til að hræða okkur með grýlu. Hann sagði: Evrópusambandið verður örugglega brjálað ef þið gerið þetta. Þið skuldið Norðmönnum hollustu. Ég veit ekki fyrir hvað, en allt í lagi, þetta var skoðun hans.

En auðvitað eigum við ekki að hlusta á þetta. Við eigum náttúrlega að reisa málið þannig og fara þannig með það í gegnum þingið að það sé eins óumdeilt og vel fram borið og hægt er. Það er það ekki í dag. Og nú spyr ég hv. þingmann: (Forseti hringir.) Er ekki rétt að krefjast þess og að almenningur krefjist þess með sterkari hætti að málinu verði frestað?