149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:38]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er náttúrlega fullkomlega eðlilegt að bera þessi tvö mál saman. Það er að vísu nokkuð um liðið síðan ég las greinargerð með frumvarpi hæstv. iðnaðarráðherra um búfjársjúkdóma þar sem sagan sem hv. þingmaður vísaði til er rakin. Hún birtist m.a. í því að gengið er fram af mikilli einbeitingu af hálfu Eftirlitsstofnunar Evrópu, ESA, með linnulausum bréfaskriftum í Stjórnarráðið. Síðan lýkur því máli, annars vegar með dómi fyrir EFTA-dómstólnum og hins vegar með dómi Hæstaréttar, sem er skaðabótamál í framhaldi sem er reist á niðurstöðu EFTA-dómstólsins þar sem þær skaðabætur voru ákvarðaðar sem ég gat um þegar ég nefndi 3 milljarða.

Það þarf auðvitað að rýna betur ofan í þá sögu og frumgögn, sem hefur sýnt sig koma að góðu haldi í rannsókn á því máli sem við erum að fjalla um núna, og rýna í nákvæmlega hvað var ákveðið í þessu máli á vettvangi sameiginlegu nefndarinnar og hvaða eiginlegu undanþágur voru veittar.

Reyndar hefur verið haft eftir mjög virtum lagamanni, Stefáni Má Stefánssyni, að dómur EFTA-dómstólsins hafi einfaldlega verið rangur. Ég leyfi mér að nefna það í framhjáhlaupi.

En við gætum verið í sömu stöðu og Mexíkómenn sem standa frammi fyrir kröfu um að það verði reistur múr og þeir eigi að borga fyrir hann. Við erum eiginlega í svipaðri stöðu. (Forseti hringir.) Það verður gerð krafa um sæstreng og í gegnum þann málarekstur yrðum við, a.m.k. að stórum hluta, látin borga hann.