ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka nýja og allnokkuð sláandi samlíkingu. En varðandi dóminn er ég sammála þeim lögmönnum sem hafa fullyrt að hann hafi einfaldlega verið rangur, ekki átt sér stoð í lögum. En þess heldur veltir maður því fyrir sér að ef Evrópusambandið leyfir sér að túlka lögin þetta frjálslega, eða í þessu tilviki EFTA-dómstóllinn og ESA sem, eins og hv. þingmaður rakti hér stuttlega, gekk náttúrlega mjög hart fram í málinu, hlýtur maður að setja það í samhengi við hvernig framgangan yrði ef menn teldu að ekki væri verið að uppfylla kvaðir og markmið orkupakkans.
Kjötmálið er smámál í heildarsamhengi hlutanna fyrir Evrópusambandið þó að það sé stórt mál fyrir okkur. Það er mjög stórt mál fyrir okkur en mjög lítið í heildarsamhengi hlutana hjá Evrópusambandinu. En menn voru ekki tilbúnir að horfa í gegnum fingur sér með það, öðru nær.
Orkumálin eru hins vegar risastórt mál hjá Evrópusambandinu, algjört forgangsatriði um þróun sambandsins og markmið þess um að draga jafnt og þétt úr losun gróðurhúsalofttegunda og tengja saman evrópska raforkunetið.
Þá má velta fyrir sér, og ég spyr hv. þingmann spurningar, í ljósi þessa samanburðar, annars vegar tiltölulega lítið mál fyrir Evrópusambandið þar sem engu að síður er gengið hart fram gagnvart okkur, hins vegar mjög stórt hagsmunamál fyrir Evrópusambandið: Hvers er þá að vænta ef stofnað verður til samningsbrotamáls, eins og færð hafa verið sterk rök fyrir að geti orðið? Verður gengið jafn hart fram og í kjötmálinu? (Forseti hringir.) Eða kann þetta að fela í sér eitthvað sem er umfram það sem við höfum áður séð?