149. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[23:51]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vil taka undir þá meginniðurstöðu hans að það beri að hafna þessari þingsályktun. Það ber að taka jákvæða, uppbyggilega ákvörðun sem er reist á ákvæðum EES-samningsins sjálfs og leggja málið fyrir sameiginlegu nefndina til sáttameðferðar með það fyrir augum að fá fullgildar undanþágur frá því að innleiða ákvæði sem hvort sem er hafa ekki þýðingu því að við höfum ekki raforkutengingu við Evrópu. Rétt eins og við fengum undanþágu í jarðgashluta þessa orkupakka.

Spurning mín er þessi: Er það ábyrg stjórnarframkvæmd að halda málinu til streitu af þeirri óbilgirni sem við sjáum í málinu?

Ég leyfi ég mér að vísa í tvo eða þrjá staði, eftir því sem tíminn leyfir, í viðtali við Friðrik Árna Friðriksson Hirst, landsréttarlögmann, sem birtist á vefsíðunni mbl.is 10. apríl sl. Hann segir, með leyfi forseta:

„Færa má rök fyrir því að meiri lagaleg óvissa felist í þeirri leið sem ríkisstjórnin hyggst fara varðandi innleiðingu á þriðja orkupakka Evrópusambandsins en því að Alþingi hafnaði því að samþykkja orkupakkann.“

Það segir sömuleiðis, með leyfi forseta:

„Hvað lagalega óvissu varðar vegna leiðar ríkisstjórnarinnar segist Friðrik aðspurður til að mynda ekki útiloka að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) teldi ástæðu til þess að höfða samningabrotamál fyrir EFTA-dómstólnum á þeim forsendum að Íslandi beri að innleiða þriðja orkupakkann að fullu í landslög.“ (Forseti hringir.)

Svona heldur þetta viðtal áfram. Það er fullt af viðvörunum sem ekki verður litið fram hjá, herra forseti.