ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þetta er einmitt það sem ég hef aðallega lagt áherslu á í kvöld. Ábyrgð þeirra stjórnmálamanna sem hunsa viðvaranir frá færustu sérfræðingum er mjög alvarlegt mál og ábyrgð slíkra stjórnmálamanna er mikil.
Í upphafi þegar við byrjuðum að ræða þetta mál var það þannig að fyrir lágu umsagnir sem sumar hverjar höfðu ekki verið virtar viðlits, hin ágætu lögfræðilegu álit sem búið er að margvitna í, en menn ákváðu að túlka sérstaklega það álit sem mest hefur verið vitnað hér til og það mjög frjálslega, líta á það sem hlaðborð, velja úr því það sem mönnum líkaði best og hentaði best málstað þeirra en sleppa öðru, sem var að sjálfsögðu fásinna.
Þetta er búið að benda á mörgum, mörgum sinnum. Nú er svo komið eftir þær viðræður og umræður sem hafa átt sér stað hér undanfarna daga og nætur, að almenningi í landinu, sem enga kynningu hafði fengið á málinu, er að verða ljóst hver alvara málsins er, hvað það er alvarlegt að halda því áfram svo vanbúnu sem það er.
Þess vegna, herra forseti, er nú komin síða þar sem menn „líka“ við það að forseti Alþingis taki tillöguna af dagskrá og fresti afgreiðslu hennar alla vega fram á haustið. Það held ég að verði rík krafa (Forseti hringir.) næstu daga. Almenningur mun flykkjast að baki þeirri tillögu.