ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Nú skil ég vel að þetta sé eins og hér gengur á. En málið er að í öllum stjórnmálaflokkum, tel ég, er meiri hluti gegn því að innleiða þennan orkupakka. Í skoðanakönnun, sem var að vísu tekin fyrir dálitlu síðan, var meira að segja í flokki hæstv. forseta, hvar menn eru áfjáðir í að ganga inn í kaldan faðm Evrópusambandsins, ágreiningur uppi um að samþykkja orkupakkann eins og hann lítur út.
Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun, ég held frá því í byrjun maí eða seint í apríl, voru 62% á móti þessum pakka. Það er með miklum ólíkindum ef stjórnvöld ætla að fara gegn þeim meirihlutavilja þjóðarinnar og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að það verði gert.
Auðvitað mun það hafa skelfilegar afleiðingar fyrir þessa stjórnmálaflokka og ég grenja það ekki neitt. En það er ekki það sem málið snýst um. Þetta er miklu alvarlegra mál en svo. Þetta mál á ekki að vera flokkspólitískt þótt búið sé að gera það flokkspólitískt á Alþingi — ekki af okkur. Það á að hlusta á þjóðina og það á að draga þetta mál til baka. Það á að geyma það fram á haust og það á að gaumgæfa það betur.