149. löggjafarþing — 112. fundur,  29. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[00:08]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir andsvarið. Hann talar um að það sé gott að fá þingmenn til að varpa nýju ljósi á umræðuna og það má vera að þar sem ég er að koma úr hálfs mánaðar fríi hafi ég eitthvað hlaðið batteríin og geti þar með kveikt á nýjum ljósum. Það var mjög kærkomið og reyndar gott líka að koma aftur.

Í sambandi við vindmyllugarða og þá orku sem vindmyllur gefa hafa þær verið í þróun hér á landi um allnokkurt skeið og er nú svo komið að þetta hefur þróast í þá átt að menn eru að fá betri tæki. Mikið viðhald hefur verið á þessum vindmyllum hingað til og oft erfitt um aðdrætti og annað slíkt í sambandi við það. En það hefur líka vakið athygli mína að þeir sem tala mest um sjónmengun hafa ekki mikið, núna allt í einu, talað um að sjónmengun sé af vindmyllum ef hægt er að fela þær inni í einhverjum afdölum úti á landi þar sem fáir berja hlutina augum. Mér finnst það svolítið hlálegt.

En það má örugglega til sanns vegar færa í sambandi við samkeppnishæfa orku og orkuverð að það kalli á hærra orkuverð að kaupa raforku sem kemur frá vindmyllum. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því en það mætti alveg segja mér það miðað við þann kostnað sem fylgir því að koma þessu á legg og halda gangandi. Það eru margir þættir sem ákvarða raforkuverð og hefur sú umræða einmitt átt sér stað núna til réttlætingar því ef raforkuverð mun hækka.