ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er einmitt laukrétt hjá hv. þingmanni, þetta er hryggjarstykkið í náttúru okkar og þess vegna kemur kannski dálítið á óvart, og ekki bara dálítið á óvart heldur mjög á óvart, að svo virðist sem þingmenn VG, sem eru í raun og veru fremstir í flokki og einna forhertastir í stuðningi sínum við þetta mál, hafi ekki gaumgæft þau áhrif á íslenska náttúru sem stórfelld uppbygging á vindmyllugörðum og smávirkjunum mun hafa í för með sér. Þess vegna langar mig til að fara aðeins yfir það mál með hv. þingmanni. Hefur hann skýringu á kúvendingu Vinstri grænna sem einu sinni voru umhverfisverndarflokkur en eru núna markaðshyggjuflokkur þegar orkumál eru annars vegar? Getur hv. þingmaður skýrt fyrir okkur kúvendingu þingmanna flokksins í þessu máli?
Þetta þykir mér eiginlega lykilspurning vegna þess að það er alla vega ekki búið að standa upp úr þeim þingmönnum VG sem hafa tekið til máls í þessu máli, og þá er ég að tala fyrri umr. því að enginn hefur komið hér í síðari umr., en það stóð upp úr nokkrum Sjálfstæðisþingmönnum að þeir hefðu verið í vafa en látið kaupa sig til fylgilags við þennan orkupakka með þessum ónýtu fyrirvörum. Því var ekki að heilsa hjá VG, að manni heyrðist, þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann: Gerir hann sér grein fyrir því hvað getur hafa orðið til þess að þingmenn VG hafa kúvent í afstöðu sinni svo gjörsamlega sem raun ber vitni?