ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir andsvarið. Nei, ég geri mér ekki grein fyrir því og mig rak alveg í rogastans við þau tíðindi og í raun og veru með ríkisstjórnina í heild, þá flokka sem að henni standa. Í sjálfu sér kemur það ekki á óvart ef maður skoðar þá breiðu skírskotun sem alltaf er verið að tala um, kannski er hún bara sameiginleg ákvörðun um að halla sér aftur í mjúkum stólum. Ég veit það ekki, það er erfitt að fullyrða hvað fólk hugsar fyrr en það fer að tala.
Stórfelld uppbygging virkjunarkosta, eins og kom fram hjá þingmanninum, og sú kúvending að Vinstri grænir skuli ekki andæfa því að það sé greinilegt að sú uppbygging muni herðast ef þessi orkupakki fer í gegn og næstu orkupakkar þar á eftir vekur líka furðu mína eftir að hafa verið varamaður nokkrum sinnum á tímabilinu 2013–2016 í öllum þeim látum sem voru þá um virkjunarkosti, rammaáætlun og annað slíkt sem Vinstri grænir hatrömmuðust út í þótt það væru virkjunarkostir sem væru í rammaáætlun, kostir í þeirri áætlun. Þeir gerðu allt til að stoppa það allt saman.
Nú er verið að tala um enn þá meira. Það er verið að tala um aukna jarðvarmauppbyggingu og síðan vindmyllugarða. Ég get ómögulega sagt (Forseti hringir.) hvernig mönnum er innan brjósts í sambandi við þá í þessum flokkum.