ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Jú, þetta er mjög þörf ábending og gott mál sem þarna kemur fram hjá hv. þingmanni. Þetta er kannski einmitt það sem við höfum verið að vara við í umræðunni undanfarið, því kerfi sem hér hefur verið rekið mjög lengi, sem byggist á því að Landsvirkjun sé með sirka 70% markaðshlutdeild, Orkuveita Reykjavíkur með 20% og Hitaveita Suðurnesja 10% — og nú er búið að endurheimta Hitaveitu Suðurnesja að hálfu úr tröllahöndum. Þrátt fyrir það að hún sé ekki í opinberri eigu er hún að 50% í eigu íslenskra lífeyrissjóða, sem ætti í sjálfu sér að tryggja það að almenningur hefði hag af rekstri hennar.
Nú aftur á móti, þegar hingað streyma inn, að því er virðist, erlendir fjárfestar sem vilja fjárfesta hér mjög verulega, eftir því sem fréttir herma, í vindorkugörðum og í smávirkjunum sem eru líka í gegnum íslensk eignarhaldsfyrirtæki, fer ekki hjá því að það fari aðeins um mann. Það eru svo margir smábitar sem safnast í púslið.
Núna, ég held í síðustu viku var Farice-strengurinn færður út fyrir sviga hjá Landsvirkjun. Spurningin er: Er verið að undirbúa sölu eða uppskipti, annaðhvort sölu á Farice eða uppskipti á Landsvirkjun? Hvað eru menn að undirbúa með svona gerð?
Það er því ýmislegt sem blasir ekki við berum augum. En í ljósi reynslunnar af því hvernig hefur verið farið með orkumál undanfarið — það liggur t.d. fyrir fyrirspurn frá þeim sem hér stendur um kostnað Landsvirkjunar síðustu tíu ár að undirbúningi við sæstreng sem ég vona að fáist svar við — ýmiss konar smábitar safnast saman og gera mann heldur tortrygginn um þetta mál. (Forseti hringir.) Eða hvað segir hv. þingmaður um það?